Rannsóknir á sviði líffræði

Rannsóknaverkefni á vegum líffræðistofu fjalla um viðfangsefni sérfræðinga stofunnar. En nær alltaf fela þau í sér samstarf, þ.e. eru unnin í samstarfi við utanaðkomandi aðila innanlands sem utan. Niðurstöður rannsókna líffræðistofu eru kynntar með fyrirlestrum, ráðstefnum, útgáfu í bókum og greinum í ritrýndum fagtímaritum.

Meðal áherslusviða í rannsóknum í líffræði við Háskóla Íslands má nefna rannsóknir á ónæmiskerfi manna, þróun og atferli bleikjuafbrigða, líflandafræði köngulóa, viðbrögð landvistkerfa við loftslagsbreytingum, framvindu á jökuleyrum, landnámi og vistfræði ugla og maura, örverum í hverum, og erfðafræði innræktunar í örnum.