Nýtt hlaðvarp um ferðamál á Íslandi á vegum fræðafólks HÍ
Ferðamál á Íslandi – Rannsóknir og raunheimar er heitið á nýju hlaðvarpi sem þrír fræðimenn í ferðamálafræði við Háskóla Íslands hafa hleypt af stokkunum. Markmið þess er að efla faglega umræðu um þessa mikilvægu atvinnugrein.
Eins og flestum sem fylgst hafa með íslensku samfélagi er kunnugt hefur ferðaþjónusta á Íslandi vaxið afar ört á undanförnum árum og um leið hefur Ísland breyst úr því að vera frumvinnslusamfélag í þjónustumiðað hagkerfi. Samhliða þessu hefur rannsóknum, nýsköpun og þróunarstarfi í ferðamálafræði fleygt fram og endurspeglast það vel í umfjölluninni í þáttunum.
Umsjónarmenn hlaðvarpsins eru þau Gunnar Þór Jóhannesson prófessor, Magnús Haukur Ásgeirsson, aðjunkt og doktorsnemi, og Magdalena Falter, nýútskrifaður doktor í ferðamálafræði, en þau eru öll kennarar og rannsakendur við námsbraut í land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands.
Markmið þeirra með hlaðvarpinu er að styrkja umræðu um ferðamál á faglegum grundvelli og kveikjan að þeim er ekki síst sú að gera rannsóknir í greininni sýnilegri og aðgengilegri. Þátttastjórnendur fjalla hins vegar ekki aðeins um rannsóknir sínar og kollega sinna heldur taka þau á móti fjölbreyttum hópi fólks úr ferðaþjónstu, sem starfar t.d. í stoðkerfi ferðaþjónustunnar eða vinnur að nýsköpunarverkefnum í geiranum, og ræðir við það um viðfangsefni eins og sjálfbærni og menningu í ferðaþjónustu, náttúruna sem auðlind í ferðaþjónustu, nýsköpun í ferðaþjónustu á landsbyggðinni, samstarfsvettvang til að efla rannsóknir í greininni og nærandi ferðaþjónustu.
Þrír þættir hafa þegar litið dagsins ljós og hér að neðan má kynna sér efni þeirra og nálgast upptöku af þeim.
Inngangsþáttur: Kynning á umsjónarmönnum og hlaðvarpinu
Í inngangsþætti hlaðvarpsins kynna þáttastjórnendur sig sjálf og ræða bakgrunn sinn og hvernig þau hófu starf á sviði ferðamálafræði ásamt því að fjalla um tilgang og markmið hlaðvarpsins.
Þáttur 1: Sjálfbærni í ferðaþjónustu
Í þessum þætti er rætt um víðtækt efni, sjálfbærni í ferðaþjónustu, með Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur, framkvæmdastjóra Íslenska ferðaklasans. Við fáum að vita meira um verkefni sem verið er að vinna að á vettvangi Ferðaklasans þar sem glímt er við áskoranir sem fylgja sjálfbærri þróun. Þá ræðir Ásta Kristín um leið sína inn í ferðamálin og við kynnumst skoðunum, framtíðarsýn og hugleiðingum hennar um þróun ferðaþjónustunnar til framtíðar.
Þáttur 2: Menning í ferðaþjónustu
Gestur þessa þáttar er Katrín Anna Lund, prófessor í land- og ferðamálafræði við Háskóla Íslands. Hún ræðir við þáttastjórnendur um hlutverk menningar í ferðaþjónustu, bæði á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi, hvernig menningarferðaþjónusta getur birst í framkvæmd og hvort öll ferðaþjónusta sé í grunninn menningarferðaþjónusta.
Fleiri þættir bætast svo við á næstu vikum á hlaðvarpsrás Ferðamála á Íslandi á YouTube