
Mengun, eyðing búsvæða og loftslagbreytingar af mannavöldum hafa veigamikil áhrif á lífríki jarðar. Þetta sést á landi og legi, í sveitum og borgum, og hefur áhrif á alla lífveruhópa.
Rannsóknaviðfangsefni líffræðinga á þessu sviði eru fjölbreytt, t.a.m.
- Hvaða áhrif hefur hlýnun á gróður og vistkerfi?
- Hvert er samspil beitar og hlýnunar í landvistkerfum?
- Hver er framvinda gróðurs á jökuleyrum?
- Hvernig mótar jarðhiti örverur og skordýrasamfélög?
- Hvaða áhrif hefur hávaði frá siglingum og veiðum á sjávarspendýr?
- Hvernig er landnámi framandi skordýra á Íslandi háttað?