
Sameindalíffræði fjallar um byggingu og virkni fruma og stórsameinda. Hún fjallar um hvernig erfðaefnið er eftirmyndað, hvernig gert er við það, hvernig frumur eru byggðar upp og hvernig flóknar lífverur geta þroskast frá einni lítilli frumu.
Meðal áherslusviða í rannsóknum í lífefna- og sameindalíffræði á líffræðistofu má nefna rannsóknir á
- Taugalíffræði og tengdum sjúkdómum
- Krabbamein og arfgenga sjúkdóma
- Meðfædda ónæmiskerfinu
- Stofnfrumum
- Byggingu og eiginleikum próteina
- Örverum í hverum
- Stofnerfðafræði og þroskun í myndun tegunda
- Sameindavistfræði