
Allar lífverur eru hlutar af vistkerfum. Þróunarfræðin er samofin allri líffræðinni, því allar lífverur eru afurð þróunar og eru í sífellt breytingum háðar. Þróun lífvera gerist í vistfræðilegu samhengi á jarðfræðilegum tímaskala, stundum einnig mjög hratt.
Rannsóknahópar á líffræðistofu eiga við spurningar sem spanna allt þetta svið:
- Hvaða þættir móta örverusamfélög háhitasvæða?
- Hvernig nýta uglur ólík búsvæði?
- Hvað hefur áhrif á hraða þróunar hjá köngulóm?
- Hvaða þættir móta samfélög sníkjudýra í fiskistofnum og fæðuvef hafsins?
- Hvaða áhrif hafa maurar sem numið hafa Ísland?
- Hvaða þættir hafa áhrif á tegundasamsetningu plöntusamfélaga?
- Hvaða þættir móta landnám tegunda (t.d. birkis) á Breiðamerkursandi?
- Hvaða gen og umhverfisþættir tengjast fjölbreytileika bleikja?