""

Ferðaþjónusta er oft talin til drifkrafta sjálfbærrar þróunar á norðurslóðum en starfsskilyrði á vinnumarkaði fela í sér áskoranir. Þemanet Háskóla Norðurslóða um ferðamál (Thematic Network on Northern Tourism) hefur gefur út fyrstu skýrslu um niðurstöður fyrsta hluta af verkefninu Tourism Employment in the Arctic: Towards Decent Work sem styrkt er af Norræna ráðherraráðinu til þriggja ára.

Á fyrsta ári verkefnisins var athygli beint að því hvernig ótrygg starfsskilyrði (e. precarity) einkenna vinnumarkað ferðaþjónustu á norðurslóðum og afleiðingum þess fyrir starfsfólk jafnt og samfélög. Skýrslan er afrakstur samstarfs rannsakenda og framhaldsnema við sjö háskóla, aðila úr ferðaþjónustunni og stoðkerfi hennar frá Norðurlöndum og Kanada sem hittust á vikulangri vinnustofu á Íslandi. Skýrslan undirstrikar sameiginlegar áskoranir sem og staðbundna þætti sem hafa áhrif á vinnumarkað ferðaþjónustu á svæðinu.

Í skýrslunni eru settar fram tillögur að aðgerðum og frekari rannsóknum.

  • Að færa áherslu í skipulagi og stefnu frá vexti eingöngu til  nálgunar sem leggur jafnari áherslu á samfélag, umhverfi og hagræna þætti.
  • Styrkja eftirlit með að réttindi á vinnumarkaði séu virt og tryggja að ferðaþjónusta verði aðlaðandi starfsvettvangur.
  • Fjárfesta í starfsnámi sem og háskólanámi á sviði ferðamála sem staðfestir stöðu ferðaþjónustu sem atvinnu sem krefst hæfni og menntunar.
  • Efla virðingu fyrir störfum í ferðaþjónustu og leggja áherslu á tungumálanám, inngildingu og jafnrétti til handa innflytjendum og starfsfólki sem vinnur árstíðabundin störf.

Þetta víðtæka samstarf er styrkt af Norræna Ráðherraráðinu, Global Affairs Canada og Nordplus. Það slær tóninn fyrir áframhaldandi rannsóknir Þemanetsins á alþjóðavæðingu vinnumarkaðarins (2026) og samspili ferðaþjónustu og samfélags (2027). Að styrkja forsendur góðrar atvinnu í ferðaþjónustu á norðurslóðum er hvort tveggja gerlegt og nauðsynlegt.

Útgefna skýrslu má finna hér í opnum aðgangi: norden.org/publications

Share