Hvernig djarfar fyrir mergð jarðar: Um líf og land frá fjöru til fjalla Evrasíu.
Mánudagur 16. mars 2026 15:00-16:30
Askja, stofa 132
Dr. Edward H. Huijbens, prófessor í menningarlandfræði við háskólann í Wageningen í Hollandi mun kynna athuganir sínar og hugmyndir sem urðu til á þriggja mánaða rannsóknarferð hans um Evrasíu haustið 2025.
Hann ferðaðist með almenningssamgöngum frá Arnhem til Kathmandu og lagði grunn að bók með vinnuheitið: Abundance of elsewheres. A convivial geography of the Alpine-Himalayan orogeny.
Á þessari málstofu mun Edward deila ferðasögu sinni, kynna bókardrögin og opna samtal um hvernig við erum öll hluti af gangverki jarðar hér og nú en jafnframt eftir víddum langtíma jarðar, eins og Páll Skúlason heitinn vildi nefna hugtakið deep time.