Hvenær
16. mars 2026
15:00 til 16:30
Hvar
Askja
Stofa 132
Nánar

Dr. Edward H. Huijbens, prófessor í menningarlandfræði við háskólann í Wageningen í Hollandi mun kynna athuganir sínar og hugmyndir sem urðu til á þriggja mánaða rannsóknarferð hans um Evrasíu haustið 2025.

Hann ferðaðist með almenningssamgöngum frá Arnhem til Kathmandu og lagði grunn að bók með vinnuheitið: Abundance of elsewheres. A convivial geography of the Alpine-Himalayan orogeny.

Á þessari málstofu mun Edward deila ferðasögu sinni, kynna bókardrögin og opna samtal um hvernig við erum öll hluti af gangverki jarðar hér og nú en jafnframt eftir víddum langtíma jarðar, eins og Páll Skúlason heitinn vildi nefna hugtakið deep time.

Dharali, Uttarakhand Indlandi.
Dharali, Uttarakhand Indlandi. Mynd: E. Huijbens, nóvember 2025.
Share